Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Bóndadagur Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Fréttir frá Tröllheimum
föstudagur, 20 janúar 2012 13:43
 

 Heil og sæl.

Börnin hafa nú borðað þorramat, farið í frábæra útiveru og sungið í salnum. Næsta verkefni er að vakna úr hvíldinni, snyrta sig og búa sig undir að taka á móti pabba sínum í síðdegiskaffi. Stúlkan á myndinni er að stinga upp í sig hákarlsbita og drengurinn býr sig undir að fá sér sviðasultu og harðfisk. Nýjar myndir úr útiverunni eru komnar inn á myndasíðuna. Góða helgi!
Kveðja Lilja Björk

 
Sólin skín á Sunnufold Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
miðvikudagur, 18 janúar 2012 16:59

sun.gif

 

  Stóra stundin runnin upp !

 
Það er okkur sönn ánægja að tilkynna nýtt nafn á sameinaða leikskóla Foldahverfis. Eftir frábær störf nafnanefndar sem að komu foreldrar, starfsfólk skólanna og starfsmenn Skóla- og frístundasviðs varð nafnið Sunnufold fyrir valinu. Við óskum öllum borgarbúum til hamingju með nýja leikskólann Sunnufold

 

 
Bóndadagur Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
föstudagur, 13 janúar 2012 10:38

Næsta föstudag er bóndadagur. Í tilefni þess ætla börnin að bjóða pabba og eða afa að koma og drekka með sér vöfflukaffi. Börnin munu syngja nokkur lög fyrir feður sína og miðað er við að mæting verði kl. 14.30 og sungið stuttu seinna.
Við gerum ráð fyrir að börnin á Tröllheimum syngi kl. 14:35 í salnum.
Börnin á Hulduheimum syngi um kl. 14:40 á deildinni sinni og Álfheimar stuttu seinna á deildinni sinni.   

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 38

Röskun á starfi vegna óveðurs eða öskufalls - Disruption of school operations

Viðburðir


Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Foldaborg | Frostafold 33 | 112 Reykjavík | Sími: 567-3138 | Póstur | Viðburðir | Fréttir